18. nóvember. 2005 01:53
Nýr bátur kom til Stykkishólms í gær. Er það 150 tonna bátur sem mun bera nafnið Arnar SH 157. Eigendur bátsins eru hjónin Guðbrandur Björgvinsson og Guðbjörg Egilsdóttir en annar bátur með því sama nafni og í eigu sömu aðila mun verða seldur bráðlega.
Arnar er 150 tonna togbátur, smíðaður á Ísafirði 1973 og síðar breytt til togveiða 1992. Skessuhorn talaði við Guðbrand á bryggjunni og sagði hann bátinn verða með rúmlega 500 tonna kvóta. Fer hann á fiskitroll nú á næstunni og síðar á netaveiðar.
Guðbrandur sagði aðspurður um horfurnar, að það væri auðvitað erfitt að standa í útgerð. Rangt skráð gengi væri að ganga af allri útgerð og fiskvinnslu dauðri. Hann væri viss um að ef gengið yrði leiðrétt myndi allt ganga vel og ráðamenn ættu að fara að skoða sinn gang vel.
Fyrir íbúa Stykkishólms eru þetta gleðifréttir því undanfarið hefur sífellt fækkað bátum við bryggjuna og er svo komið að þar sem áður iðaði allt af lífi er nú tómlegt.
DSH