06. desember. 2005 04:56
Einn af þremur ofnum Járnblendifélagsins var gangsettur 4. desember sl. eftir tæplega mánaðar viðgerðarstopp. Í stoppinu var m.a. sett ný fóðring í ofninn. Ofnspotturinn er úr stáli með fóðringu að innan úr eldföstum steinum, kolefni og bindiefnum. Endingartími ofnsfóðringa er yfirleitt um 15 ár. Áður en framleiðsla getur hafist í ofninum þarf að hita, þurrka og baka fóðringuna í um vikutíma. Meðan á þurrkun stendur kemur reykur/vatnsgufa frá ofninum sem hleypt er út án hreinsunar. Vatnsgufan myndi þéttast í pokasíuvirkinu, eyðaleggja pokana og gera það óstarfhæft. Reykhreinsivirkið verður því gangsett u.þ.b. 11.-12. desember eða þegar eiginleg framleiðsla hefst.
Fram að þeim tíma eru skorsteinar opnir og gera má ráð fyrir nokkrum sýnilegum reyk/vatnsgufu. Ofninn er keyrður á mjög lágu álagi þennan tíma eða u.þ.b. 15-20% af hámarksálagi, segir í tilkynningu frá ÍJ.