09. desember. 2005 04:03
Miðvikudaginn 14. desember n.k. verður haldið málþing um konur og karla í fjölmiðlum á vegum menntamálaráðuneytisins og Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum. Tilefnið er rannsókn og nýútkomin skýrsla um konur og karla í fjölmiðlum sem gerð var að beiðni menntamálaráðuneytisins og verða niðurstöður kynntar á málþinginu sem haldið verður við Háskóla Íslands, Lögbergi stofu 101, kl. 12-13.30.
Dagskráin er svohljóðandi:
HVER ER Í MYND? UM KONUR OG KARLA Í FJÖLMIÐLUM
Eyrún Magnúsdóttir fundarstjóri setur fundinn
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra flytur ávarp
Niðurstöður rannsóknarinnar kynntar í þrem liðum:
- Auður Magndís Leiknisdóttir, B.A. í félags- og kynjafræði.
“Konur og karlar í auglýsingum: athugun á þætti karla og kvenna í auglýsingum á RÚV, Stöð 2 og Skjá einum.”
- Margrét Valdimarsdóttir, B.A.-nemi í félags- og fjölmiðlafræði.
“Karlar og konur í íslensku sjónvarpi: fréttir.”
- Elsa María Jakobsdóttir, B.A.-nemi í félags- og fjölmiðlafræði.
“Karlar og konur í sjónvarpsþáttum: athugun á birtingu kynjanna í sjónvarpsþáttum á RÚV, Stöð 2 og Skjá einum.”
Kristín Loftsdóttir, mannfræðingur og Helga Björnsdóttir, doktorsnemi í mannfræði.
“Karla- og kvennarými: Kynjaðar ímyndir forsíðu Fréttablaðsins.”
Þorgerður Þorvaldsdóttir, sagn- og kynjafræðingur
“Ef kyn skiptir máli. Um kyn og samfélagslega ábyrgð fjölmiðla.”
Pallborð með fulltrúum fjölmiðla.