03. febrúar. 2006 10:44
Bæjarráð Akraness hefur samþykkt að skipa vinnuhóp sem fari yfir og endurskoði lögreglusamþykkt bæjarins í heild sinni. Skipað verður í vinnuhópinn á næsta fundi ráðsins. Það var Þorvaldur Vestmann sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs sem lagði þetta til við bæjarráð. Í bréfi sem hann sendi ráðinu kemur fram að í núgildandi lögreglusamþykkt sé óheimilt að leggja við íbúðargötur eða almennum bílastæðum vörubifreiðum sem eru meira en 3,5 tonn að leyfðri heildarþyngd, nema þau séu sérstaklega til þess ætluð.
Fram kemur í bréfi Þorvaldar að frá því að þetta ákvæði var sett í lögreglusamþykktina hafi sú breyting orðið á stærð bifreiða sem notaðar eru sem einkabílar að þyngd þeirra fer yfir þessi mörk og því er eigendum þeirra óheimilt að geyma bifreiðarnar við heimili sín. Telur Þorvaldur því að augljóslega þurfi að endurskoða þessi ákvæði. Hann hafði farið yfir málið með yfirlögregluþjóninum á Akranesi sem sé honum sammála auk þess sem yfirfara þurfi fleiri atriði í lögreglusamþykktinni.