10. febrúar. 2006 12:06
Allnokkur umræða hefur verið að undanförnu um að vera kunni að misbrestur sé á því að atvinnu- og dvalarleyfa hafi verið aflað fyrir erlenda starfsmenn sem starfa hér á landi. Eðli máls samkvæmt má gera ráð fyrir að ekki séu staðin skil á sköttum og gjöldum vegna vinnu starfsmanna sem starfa hér ólöglega og getur verið um verulega hagsmuni að ræða. Miklar framkvæmdir standa nú yfir á Akranesi sérstaklega í byggingariðnaði. Margir verktakar hafa átt í erfiðleikum með að fá menn til starfa og hafa því brugðið á það ráð að ráða til sín erlenda starfsmenn. Skattayfirvöld og lögreglan á Akranesi ákváðu að kanna stöðu þessara mála og heimsóttu lögreglumenn og starfsmenn eftirlitsdeildar skattstjóra fjölda fyrirtækja í bænum nú í þessari viku.
Fyrstu niðurstöður þessarar vinnu benda til þess að ástandið í þessum málum sé nokkuð gott. Alls voru könnuð staða mála hjá 40 erlendum starfsmönnum og reyndust aðeins tveir ekki vera með leyfin í lagi. Annar þeirra var með nýútrunnið leyfi en hinn nýkominn til landsins.
Einhvers misskilnings virðist þó gæta varðandi starfsmenn frá Evrópusambandsríkjum. Höfðu menn í einhverjum tilfellum ekki áttað sig á því að að þó Evrópusambandsborgarar þurfi ekki atvinnuleyfi hér á landi, þá þurfa þeir að afla sér dvalarleyfa ef þeir dvelja hér lengur en 3 mánuði eða 6 mánuði ef þeir eru í atvinnuleit. Einnig þarf að tilkynna til útlendingastofnunar þegar þeir hefja vinnu hér. Einhverjir höfðu ekki áttað sig á þessu og töldu að sama gilti fyrir þá og Íslendinga á öllum sviðum.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akranesi verður unnið frekar í málum þeirra tveggja sem ekki höfðu tilskilin leyfi og voru starfsmönnum og atvinnurekendum kynntar reglur er varða Evrópusambandsborgara þar sem það átti við. Skattayfirvöld munu á næstunni vinna úr gögnum sem aflað var.