05. nóvember. 2006 11:48
Talsvert tjón hefur orðið á mannvirkjum í Grundarfirði í óveðrinu sem nú gengur yfir. Veðrið byrjaði að versna þar uppúr klukkan 8 í morgun og var að sögn Ólafs B Ólafssonar, björgunarsveitarmanns verst um klukkan 9. Þá fauk meðal annars hluti af þaki grunnskólans og lenti það að mestu á nýjum gervigrasvelli við skólann. Þá fauk þak af geymsluskúr Essó við Nesveg og smáskemmdir hafa víðar orðið. Engin óhöpp eru á fólki sem vitað er um. Margir björgunarsveitarmenn hafa verið kallaðir út í Grundarfirði til aðstoðar og fjöldi sjálfboðaliða er einnig við störf. Að sögn Ólafs er þetta eitt versta veður sem hann man eftir frá tímum kröppu lægðanna sem gengu yfir snemma á síðasta áratug.
"Suðvestanáttin er einna versta áttin hér í Grundarfirði. Þá koma gríðarlega öflugar og langar vindhviður og síðan slær niður á milli. Ég er nú að vonast til að þetta sé heldur að ganga niður hjá okkur núna," sagði Ólafur B Ólafsson í Grundarfirði nú laust fyrir hádegi.
Á efri myndinni eru björgunarsveitarmenn í Grundarfirði að vinna við þak geymsluskúrsins við Nesveg í morgun. Neðri myndin sýnir hluta þaks grunnskólans á sparkvellinum, sem einnig er töluvert skemmtur. Ljósm. Sverrir