30. nóvember. 2006 01:34
Á morgun, föstudaginn 1. desember lýkur yfirlitssýningu á verkum Páls Guðmundssonar frá Húsafelli, sem undanfarnar vikur hefur staðið yfir í Safnahúsi Borgarfjarðar við Bjarnarbraut í Borgarnesi. Sama dag heiðra ýmsir vinir Páls listamanninn með að heimsækja hann í Safnahúsið og er gestum boðið að líta við. Við þetta tilefni verður frumflutt lag Hilmars Arnar Hilmarssonar, Rauði steinninn við ljóð Guðmundar Böðvarssonar, skálds frá Kirkjubóli. Verkið verður flutt á steinhörpur Páls. Listamennirnir sem fram koma eru hljómsveitin Sigurrós, Gunnar Kvaran, Snorri Hjálmarsson, Viðar Guðmundsson, Steindór Andersen, Frank og fleiri valinkunnir vinir Páls sem munu heiðra hann með nærveru sinni og sýna lipra takta á steinhörpurnar.
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.