11. júlí. 2007 01:13
Annað kvöld verður haldinn kynningarfundur um húsnæðismál Varmalandsskóla. Fundurinn verður í Þinghamri og hefst kl. 20.30. Þar munu Einar Ingimundarson arkitekt og Finnbogi Rögnvaldsson formaður fræðslunefndar Borgarbyggðar fara yfir stöðu mála. Starfsfólk skólans og foreldrar grunnskólabarna eru hvattir til að mæta. Líkt og Skessuhorn hefur greint frá hefur staðið til að halda fundinn um nokkra hríð. Í allnokkurn tíma hefur verið rætt um hvernig nýta skuli skólamannvirkin á Varmalandi. Skýrslur hafa verið unnar og úttekt gerð á mannvirkjum. Ekki hafa menn verið á eitt sáttir um hvort skuli byggja við og breyta elsta skólahúsinu. Eða þá að breyta því húsi sem í daglegu tali er kallað Húsó og er húsnæðið sem hýsti Húsmæðraskólann á Varmalandi á sinni tíð, þannig að það henti betur til kennslu.
Mörgum hefur fundist að byggja skuli við gamla skólahúsnæðið og nýta Húsmæðraskólahúsið til annarra hluta, til þess að kennslan fari öll fram undir einu þaki, en aðrir eru þveröfugrar skoðunar. Eins og staðan er núna er kennt í báðum húsunum, gamla skólanum og Húsó og leikskólinn býr við þröngan kost í kjallara gamla skólahúsnæðisins.