31. júlí. 2007 04:19
Heimildamyndin “Baldur – vegur yfir Breiðafjörð” var formlega kynnt á veitingastaðnum Fimm fiskum í Stykkishólmi í morgun. Myndin er um flutninga á farþegum og vörum til byggðarlaga í og við Breiðafjörð á öllum árstíðum og er tekin á nokkurra ára tímabili í lok síðustu aldar. Myndin er byggð upp í kringum Baldur, 193 brl. bát sem þjónaði íbúum og ferðamönnum farsællega í rúman aldarfjórðung. Þá er einnig í myndinni fylgst með byggingu sjöundu kynslóðar Baldurs hjá skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi. Það var hátækniskip þess tíma og kom til heimahafnar í Stykkishólmi 5. apríl árið 1990.
Framleiðandi myndarinnar er Óli Örn Andreassen kvikmyndagerðarmaður og er hann jafnframt aðalmyndatökumaður. Texti myndarinnar er skrifaður af Guðmundi Lárussyni og þulur er Ævar Kjartansson. Kvikmyndin er merkileg heimild um liðna tíð, þar sem t.d. flutningur á bílum yfir Breiðafjörð eins og hann er sýndur myndi í dag kallast nokkuð frumstæður.
Almenningi er nú gefinn kostur á að útvega sér myndina á DVD diski en henni hefur verið dreift á sölustaði á Snæfellsnesi. Það var Sturlu Böðvarssyni, forseta Alþingis og þingmaður Norðvesturkjördæmis sem tók við fyrsta eintaki myndarinnar en Sturla beitti sér fyrir stuðningi við gerð myndarinnar þegar hún var á lokastigi myndvinnslu þegar hann var ráðherra samgöngumála.