01. nóvember. 2007 11:37
Eins og kunnugt er hefst rjúpnaveiðitímabilið í dag. Stendur það samtals í 18 daga en síðasti leyfilegi veiðidagurinn er 30. nóvember. Margar skyttur koma til með að leggja land undir fót með það að markmiði að ná í jólamatinn. Í fréttatilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að á fyrsta veiðidegi í fyrra voru björguarsveitir félagsins kallaðar út þrisvar sinnum til leitar að rjúpnaskyttum. Félagið vill vekja athygli á nokkrum góðum ferðareglum sem rétt er að hafa í huga áður en lagt er af stað í veiðiferðina:
Almennar umgegnisreglur við skotvopn
• Geymið byssu og skot á læstum stöðum
• Ekki aka á veiðistað með byssuna hlaðna
• Hafið öryggið ávallt á þegar gengið er með byssu
Ferðareglur rjúpnaskyttunnar
• Fylgist með færð og veðurspá
• Gerið ferðaáætlun og skiljið hana eftir hjá aðstandendum
• Kynnið ykkur vel það svæði sem ferðast á um
• Hafið með góðan hlífðarfatnað
• Takið með sjúkragögn og neyðarfæði
• Fjarskipti þurfa að vera í lagi, gps, kort, áttaviti og talstöð/sími og kunnátta verður að vera til staðar til að nota þau
• Verið viss um að farartækið sé í góðu ásigkomulagi áður en lagt er af stað
• Ferðist ekki einbíla
• Takið með grunnviðgerðardót fyrir farartækið, skóflu, kaðal og festið allan farangur
• Munið að akstur og áfengi fer ekki saman
• Ef ferðast er í bíl spennið beltin og notið hjálma, brynjur og annan hlífðarfatnað ef farið er um á vélsleða
• Látið vita reglulega af ykkur og skráið nafn og hvert ferðinni er heitið í bækur í fjallaskálum
• Ef ekki er hægt að komast lengra á bílnum bíðið í honum þar til hjálp berst, það er mun auðveldara að finna bíl heldur en fólk á göngu og bíllinn veitir skjól
• Betra er að snúa við í tíma heldur en að koma sér í ógöngur