02. nóvember. 2007 12:05
Ólafsvíkurkirkja á 40 ára vígsluafmæli á þessu ári, nánar til tekið þann. 19. nóvember. Af því tilefni hefur verið ýmis konar fjölbreytni í helgihaldi og safnaðarstarfi kirkjunnar á árinu. Kærleiksmessa í febrúar, sóknarnefndarmessa í mars sem og fagnaðarfundur með tónlistarívafi með Stefán Hilmarsson og Eyjólf Kristjánsson í öndvegi, munamessa í apríl og kirkjumunasýning í kjölfarið í kirkjulistaviku sem endaði með vortónleikum Kirkjukórs Ólafsvíkur fimmtudagskvöldið 26. apríl. Skólamessa var síðan haldin 30. september sl. þar sem grunnskóla- og leikskólabörn voru í forgrunni.
Lokatónninn í þessari afmælishátíð verður sleginn sunnudaginn 18. nóvember nk., en þá verður hringt til hátíðarmessu kl. 14.00 í Ólafsvíkurkirkju. Þar mun biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, prédika og fyrrverandi prestar í Ólafsvík munu þjóna ásamt sitjandi sóknarpresti. Sameiginlegur kór kirkna af norðanverðu Snæfellsnesi munu syngja við messuna. Hátíðarkaffi verður haldið í félagsheimilinu Klifi að messu lokinni og þar flytur Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, erindi um byggingarsögu kirkjunnar.