10. nóvember. 2007 11:00
Umhverfisstofnun hefur vakið athygli á fölskum formerkjum sem svokallaðir orkudrykkir eru oft seldir undir. Um sé að ræða drykki sem innihaldi koffín og geti haft skaðleg áhrif á unga neytendur. Drykkir sem neytt er með það að markmiði að ná fram örvandi áhrifum eru almennt kallaðir orkudrykkir. Þetta samheiti er þó villandi þar sem það gefur til kynna að um orkugefandi drykki sé að ræða. Svokallaðir orkudrykkir innihalda samt ekki meiri orku, þ.e. hitaeiningar, en margir aðrir drykkir og í dag eru jafnvel til sk. „light“ orkudrykkir sem eru í raun hitaeiningasnauðir. Svokallaðir orkudrykkir innihalda allir koffín og flestir innihalda þar að auki önnur virk efni, svo sem ginseng eða extrökt úr öðrum plöntum. Auk þess geta þessir drykkir innihaldið vatnsleysanleg vítamín auk tauríns, inositols og glucuronolactons.
Innihaldsefni í svokölluðum orkudrykkjum geta verið nokkuð mismunandi eftir drykkjartegund og magn einstakra innihaldsefna er afar breytilegt. Þannig getur magn koffíns í orkudrykkjum verið hærra en leyfilegt er á Íslandi, þ.e. 150 mg/l. Erlendis eru t.d. víða á markaði drykkir sem innihalda 320 mg/l af koffíni.
Koffín getur haft ýmis óþægileg áhrif á líðan fólks, svo sem hjartsláttartruflanir, svefnleysi og jafnvel kvíðatilfinningu ef koffíns er neytt í stórum stíl. Börn eru almennt viðkvæmari fyrir koffíni en fullorðið fólk og því þykir neysla koffíns óæskileg fyrir börn.
Ýmsar matvælastofnanir í Evrópu hafa gefið út tilmæli um að takmarka neyslu svokallaðra orkudrykkja, sérstaklega þeirra drykkja sem innihalda taurín og glucuronlacton ásamt koffíni. Þessi viðvörun var gefin út í ljósi niðurstaðna sænskrar rannsóknar þar sem sýnt var fram á að ef áfengi er blandað með orkudrykkjum eða þeirra neytt samhliða mikilli hreyfingu getur það valdið alvarlegum hjartsláttartruflunum sem í versta falli geta leitt til skyndilegs dauðsfalls. Þrátt fyrir að þörf sé á enn ítarlegri rannsóknum er engu að síður ráðlagt að slökkva ekki þorsta með orkudrykkjum né blanda þeim út í áfengi.
Markaðssetningu svokallaðra orkudrykkja er yfirleitt beint að ungu athafna- og/eða íþróttafólki. Þess vegna er ungt fólk aðaláhættuhópurinn þegar kemur að ofneyslu svokallaðra orkudrykkja.