10. desember. 2007 11:05
Skallagrímsmenn eru komnir í áttaliða úrslit í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar. Þeir þurftu að hafa mikið fyrir því að leggja að velli ungt og sprækt lið FSu frá Selfossi og nágrenni. Leikurinn fór fram í Fjósinu í Borgarnesi sl. laugardag og lauk með sigri Skallagríms 91:80. Heimamenn byrjuðu afar illa í leiknum, voru komnir undir 0:9 strax í byrjun og þá strax ljóst í hvað stefndi. Úrvalsdeildarliðs Skallagríms þurfti að hafa fyrir hlutunum gegn liðinu úr 1. deildinni.
Borgnesingar sigruðu FSu í Fjósinu nú rétt í þessu, lokatölur voru 91-80. Sunnanmenn börðust af krafti allan leikinn með Árna Ragnarsson í broddi fylkingar, en Borgnesingar unnu sig engu að síður hægt og bítandi inn í leikinn og höfðu forystu að loknum fyrsta leikhluta, 19-15. Darell Flake hitti vel fyrir heimamenn og Hafþór Gunnarsson fyrirliði kom einnig af krafti inn í leikinn og var óragur við að keyra á hina ungu og óreyndu sunnanmenn. Staðan í hálfleik var 48:40 fyrir Skallagrím.
Í þriðja leikhluta héldu heimamenn forustu á bilinu 10-15 stigum, þökk sé sterkum leik Alain Fall sem prjónaði sig trekk í trekk í gegnum vörn gestanna. Sunnanmenn voru þó aldrei langt undan og náðu að minnka muninn niður í sex stig undir lok þriðja leikhluta, 61:67. Þeir bættu síðan um betur strax í byrjun fjórða leikhluta, en þá komu tveir þristar í röð frá Pétri Már Sigurðssyni í liði Skallagríms. Munurinn þá kominn aftur upp í 10 stig og þar með var grunnur að góðum sigri lagður.
Hjá Skallagrími var Darrel Fall stigahæstur með 22 stig og 16 fráköst. Hafþór Gunnarsson skoraði 20, Allan Fall 17 og Milojica Zetovic 10. Hjá FSu voru þeir Árni Ragnarsson og Matthew Hammer stigahæstir með 23 stig hvor og Ari Gylfason skoraði 12.