19. desember. 2007 02:10
Vinnslu jólablaðs Skessuhorns lauk í nótt og er það nú á leið úr prentun til áskrifenda og í verslanir. Blaðburðarbörn gætu orðið örlítið seinna á ferðinni en venjulega, en verða þó síðdegis í dag með hnausþykkan jólaglaðning til áskrifenda á Akranesi og í Borgarnesi. Áskrifendur á öðrum stöðum Vesturlands og utan landshlutans fá svo sína sendingu á morgun.
Blaðið er stærsta blað ársins, 80 síður, og jafnframt það síðasta sem kemur út á árinu. Í því kennir margra grasa og efnistök eru ólík hefðbundnum tölublöðum. Jólaþema, krossgáta, myndagáta, hugvekja og áhugaverð viðtöl við tíu manns vítt og breitt af Vesturlandi. Þá senda níu valinkunnir Vestlendingar jólakveðju úr héraði, fréttaannáll ársins er á sínum stað, sagnaritari samtímans er kynntur og áfram mætti lengi telja. Hinsvegar er sjón sögu ríkari.
Blaðamenn, og annað starfsfólk Skessuhorns, fara nú flestir í jólafrí fram til 2. janúar. Hinsvegar verður vakt um Skessuhornsvefinn og þarf að senda tilkynningar og efni á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is eða hringja í síma 894-8998.