03. janúar. 2008 11:36
Rólegt var hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar um áramótin. Einungis eitt útkall var á nýársnótt. Eldur kviknaði í kerru á Suðurgötu skammt frá Landsbankahúsinu. Sá eldur var slökktur fljótt, en kerran var notuð sem pallur við að skjóta upp flugeldum í hvassviðrinu. Hjá Slökkviliði Borgarbyggðar var ekkert útkall um áramótin. „Enda veðrið með eindæmum gott fyrir okkur,“ segir Bjarni Þorsteinsson slökkviliðsstjóri. Kveikt var í ruslagámum við Skagaver á Akranesi laugardaginn 29. desember. Gámarnir skemmdust talsvert. Á sunnudag var mikið að gera hjá slökkviliðinu í tengslum við óveðrið sem þá geysaði.
Þá þurfti mannskap á körfubíl til að aðstoða vegna foks á tveimur húsþökum og dæla vatni úr kjöllurum húsa, þó aðallega á höfuðborgarsvæðinu, en þangað voru sendir fjórir menn með dælur.
Öllum brennum á Vesturlandi var frestað ýmist þangað til veður batnaði á nýársdag eða fram á Þrettándann, nema brennu við Víðigrund á Akranesi þar sem hávaðarok skipti brennumenn litlu máli.