08. janúar. 2008 11:53
Til að sá vinsæli leikur knattspyrnan geti þróast þurfa dómaramálin að vera í lagi. Oft hefur mönnum orðið tíðrætt um þann þátt, enda jafnan verið skortur á dómurum og því mannval minna en æskilegt má teljast. Mikil gróska hjá Knattspyrnudómarafélagi Akraness gefur tilefni til vona um að þetta sé að breytast. Knattspyrnudómarafélag Akraness hélt nýlega dómaranámskeið og útskrifuðust hvorki fleiri né færri en 40 unglingar með dómarapróf. Uppistaðan í þessum hópi eru krakkar í 3. aldursflokki karla og kvenna.
Einn af efnilegri dómurum félagsins, Þórður Már Gylfason, er kominn með réttindi landsdómara C. Dómarar með þá gráðu mega dæma í 1. deild og eru gjaldgengir sem aðstoðardómarar, eins og línuverðir heita í dag, í Úrvalsdeildinni.
Á komandi sumri mun Sævar Jónsson leiða hóp dómara frá Akranesi sem fyrr, en hann er orðinn A-dómari og dæmdi nokkra leiki í Úrvaldsdeild sl. sumar, m.a. úrslitaleikinn í bikarkeppni kvenna milli Vals og ÍBK. Valgeir Valgeirsson er landsdómari B og auk Þórðar Más er Hafliði Breiðfjörð með réttindi landsdómara C.