09. janúar. 2008 04:46
Í dag var skrifað undir samning við Borgarverk ehf. um gerð nýrra gatnamóta hringvegarins og Borgarbrautar í Borgarnesi (við Hyrnuna). Verkinu þarf að vera að mestu lokið 1. júní, áður en sumarumferðin byrjar. Hjáleið verður notuð á meðan á framkvæmdum stendur og mun hún liggja meðfram Olís og upp á Borgarbraut milli Vegagerðarhússins og BM Vallár. Útboðskaflinn er um 400 metrar, 100 metrar á hringvegi og 300 metrar á Borgarbraut, auk um 100 metra af hjáleið. Hluti verksins er gerð nýrrar fráveitulagnar og endurnýjun hita- og vatnslagna fyrir Orkuveitu Reykjavíkur á þessu svæði. Fyrsta áfanga verksins skal lokið 15. apríl en verklok eiga að vera eigi síðar en 1. júlí.
Að sögn Guðmundar Inga Waage hjá Vegagerðinni verður umferð að vera komin á nýja veginn ekki síðar en 1. júní nk., áður en sumarumferðin hefst. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á 91.340.215. Auk Borgarverks, sem var næst kostnaðaráætlun með tilboð upp á 93.508.000, bauð Þróttur ehf rúmar 109 milljónir og JBH vélar - Tryggvi Sæmundsson-Heyfang sf. en þeirra tilboð hljóðaði upp á rúmar 107 milljónir.