14. febrúar. 2008 08:18
Söngkeppni vinnustaða í Stykkishólmi verður haldin 1. mars nk. á Hótel Stykkishólmi. Keppnin hefur hlotið nafnið Söngvaseiður og mun dómnefnd velja seiðmann eða seiðkonu kvöldsins. Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin. Fyrirtæki eða vinnustaðir geta skráð keppendur til þátttöku til 15. febrúar. Þátttakendur æfa svo með hljómsveit fram að keppni þar sem viðkomandi atriði verða slípuð til. Boðið verður upp á þriggja rétta matseðil og söngkeppnin fer fram meðan á borðhaldi stendur. Að því loknu verður dansað fram á nótt. Skráningar fara vel af stað og verður spennandi að sjá hver sigrar keppnina í ár og hvort þessi nýjung í skemmtanahaldi Hólmara nær að festa sig í sessi sem árlegur viðburður.