25. febrúar. 2008 09:15
Framleiðsla á kjöti í janúarmánuði var 7,8% meiri en í sama mánuði í fyrra. Framleiðsla jókst á alifuglakjöti um 10,7%, nautgripakjöti um 16,1% og hrossakjöti um 61,2%. Síðastliðna 12 mánuði hefur kjötframleiðslan aukist um 6,3%. Sala á kjöti var með besta móti í mánuðinum, eða 15,9% meiri en í janúar í fyrra. Þessi mikla aukning kann þó að hluta til að eiga sér skýringu í hve snemma sprengidag bar upp í ár, enda tæp 50% aukning í kindakjöti. Á sama hátt var febrúar í fyrra mikill kjötsölumánuður. Kjötsala sl. 12 mánuði er 7,8% meiri en næstu tólf mánuði á undan. Alifuglakjöt eykur enn hlutdeild sína í heildar kjötmarkaðnum og er nú komið yfir 30%.