09. júní. 2008 02:45
Í síðustu viku heimsóttu þrír þáttargerðarmenn frá sjónvarpsstöðinni ProSieben í Þýskalandi tvö bú á Vesturlandi. Þangað fóru þeir til að taka upp heimildarþátt um ýmislegt sem tengist vinnslu á lamba- og kindakjöti. “Þeir höfðu sérstakan áhuga á því að taka myndir af íslensku sauðfé í sínu náttúrulega umhverfi, en einnig að fá upplýsingar um þjóðlegan íslenskan mat, sér í lagi Þorramat. Dagurinn endaði á því að slegið var upp heljarinnar veislu hér á Bjarteyjarsandi, með ekta íslenskum Þorramat – í byrjun júní! Þetta var heldur óvenjuleg lífsreynsla, en bara ánægjulegt að vera þátttakandi í þessu öllu saman,” sagði Arnheiður Hjörleifsdóttir á Bjarteyjarsandi í samtali við Skessuhorn.
Sjónvarpsmennirnir dvöldu þrjá daga hér á landi. Auk heimsóknar á Bjarteyjarsand fóru þeir til Bjarnarhafnar á Snæfellsnesi og þriðja daginn notuðu þeir til þess að safna landslagsmyndum frá Suður- og Vesturlandi. Myndskeiðin frá Íslandi munu líklega verða í a.m.k. tveimur þáttum sem nefnast Galileo og verða í útsendingu innan tíðar á sjónvarpsstöðinni ProSieben.
Mynd: Þáttastjórnendurnir Nikolas, Daniel og Timur frá ProSieben. Ljósm. AH.