13. júní. 2008 04:05
Á síðasta fundi skipulags- og byggingarnefndar Akraness var gengið frá styrkjum frá húsverndunarsjóði fyrir úthlutanir vegna áranna 2007 og 2008. Styrkur fyrir síðasta árs kom í hlut Hallveigar Skúladóttur að Mánabraut 9 að upphæð 500 þúsund. Fimm umsóknir bárust vegna þessa árs og styrkurinn sem veittur var að þessu sinni, að upphæð ein milljón króna, kom í hlut eigenda Vesturgötu 59, Arnarstaðar. Eigendur eru Fanney M. Karlsdóttir, Helga María Magnúsdóttir og Sveinn Gíslasonar.
Jón Allanson forstöðumaður Byggðasafns Akraness og nærsveita fór yfir umsóknirnar og einnig var lögð til grundvallar umsögn Guðmundar Lúthers Hafsteinssonar sem unnið hefur að húsakönnun á Akranesi.
Skipulags- og byggingarnefndin setur það skilyrði fyrir úthlutuninni til eigenda Arnarstaðar að haft verði samráð við byggingarfulltrúa um allar breytingar og tæknilegar lausnir sem notaðar verða við endurbæturnar.
Allar umsóknirnar fimm fyrir þetta ár voru engu að síður metnar styrkhæfar. Auk eigenda Arnarstaða sendu inn umsóknir Magnús Ólafsson og fleiri eigendur Suðurgötu 32 sem er Gamla apótekið, Jóna Guðrún Guðmundsdóttir Vesturgötu 88 sem er Dvergasteinn, Unnur Leifsdóttir Skagabraut 41 fyrir Fögrugrund og Hörður Hallgrímsson og Geirlaug Jónu Rafnsdóttir að Deildartúni 3.