16. júní. 2008 10:45
Ástralska jasshljómsveitin The Hoodangers heldur hljómleika á Café Mörk á Akranesi á föstudaginn. Hljómsveitin hefur starfað í 13 ár og spilað á flestum helstu jasshátíðum heims og hvarvetna hlotið góðar undirtektir. Hljómsveitin er þekkt fyrir að spila vandaðan og fjörugan jass, sem jafnframt er aðgengilegur til hlustunar. Spilagleðin er alltaf í fyrirrúmi. Þetta er í fyrsta sinn sem hljómsveitin kemur til Íslands en hún hefur heimsótt nágrannalönd okkar nokkrum sinnum á starfsferlinum. Héðan halda The Hoodangers til Danmerkur þar sem þeir spila m.a. á Jasshátíð Kaupmannahafnar (Copebhagen Jazz Festival).
Halldór Jónsson, einn þeirra sem stendur að komu hljómsveitarinnar til Akraness, segir tónleikana vera mikinn hvalreka fyrir áhugafólk um jass. Þar sem jasshljómleikar eru frekar fátíðir á Akranesi vaknar sú spurning hvort ekki sé ráðist á garðinn þar hann er hæstur með þessum tónleikum, segir Halldór aðspurður að það verði að koma í ljós.
„Á Akranesi er rótgróið tónlistarlíf og því eru án efa margir jassáhugamenn til staðar. Oftast hafa þeir orðið að halda til höfuðborgarinnar til þess að komast á tónleika. Því er tímabært að breyta og með þessum tónleikum gefst gott tækifæri til þess.“
Þeir sem vilja fræðast meira um hljómsveitina geta gert það á heimasíðu hennar www.hoodangers.is. Tónleikarnir verða eins og áður sagði á föstudaginn á Café Mörk og hefjast kl. 21.30. Aðgangseyrir er 1.500 krónur.