25. júní. 2008 11:21

Þrír ökumenn voru teknir vegna gruns um ölvun við akstur í vikunni sem leið á Akranesi. Í einu tilfellinu var tilkynnt um útafakstur til móts við hesthúsahverfið við Æðarodda, en þegar lögreglumen komu á vettvang var bíllinn á bak og burt. Fannst hann kyrrstæður við Hvítanes með tóman olíutank, en gat hafði komið á tankinn við útafaksturinn þannig að eldsneytisleysi batt enda á flóttatilraunina. Var ökumaðurinn handtekinn og tekið úr honum blóðsýni. Talsvert var um hraðaakstur á vegum í nágrenni bæjarins í vikunni. Alls voru 29 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur og sá sem hraðast ók var á 131 km hraða þar sem hámarkshraði er 90. Hins vegar var enginn tekinn fyrir of hraðan akstur innan bæjar í vikunni. Svo virðist sem átak gegn hraðakstri á götum bæjarins sé farið að bera árangur.