05. nóvember. 2008 12:36
 |
Gáta 13 vetra er meðal týndu hrossanna |
Fjögurra hrossa er saknað úr heimahaga frá bænum Hofsstöðum í Hálsasveit í Borgarfirði. Úthagi er ógirtur á milli bæjanna Úlfsstaða, Hofsstaða, Hellubæjar og Uppsala og nýttur af Hofsstaðabændum. Vel er hinsvegar girt í kringum þessi lönd. Alls hafa fjögur hross horfið úr stóðinu, en í tvennu lagi. Í fyrra skiptið hurfu tvö folöld síðsumars en nú í lok október er tveggja hryssa saknað til viðbótar. Víðtæk leit hefur verið gerð að hrossunum bæði á landi og úr lofti og er eiganda þeirra, Eyjólfur Gíslason bóndi á Hofsstöðum, farið að gruna að hrossunum hafi einfaldlega verið stolið, önnur skýring á hvarfi þeirra sé vandfundin. Á Hofsstöðum hefur um áratuga skeið verið ræktað úrvalskyn hrossa sem þekkt eru af gæðum og glæsileika. Eyjólfur segir það verulegt tjón fyrir sig ef hrossin koma ekki í leitirnar, en önnur hryssan hafði t.d. verið seld til útflutnings áður en hún hvarf.
“Ég get ekki lengur útilokað að um þjófnað sé að ræða. Í það minnsta er það mjög dularfullt að heimafædd og hagvön hross hverfi með þessu móti þar sem girðingar sem umlykja svæðið eru ágætlega traustar. Ég hef fínkempt svæðið bæði seint í ágúst í sumar eftir að folaldanna var saknað og aftur nú í síðustu viku. Leitarflug var síðan flogið síðastliðinn laugardag þar sem flogið var yfir landið, kíkt í alla skurði, nærliggjandi jarðir leitaðar og skoðað í stóð á nágrannabæjum,” segir Eyjólfur í samtali við Skessuhorn.
Það var í kringum 20. ágúst sem tvö folöld hurfu úr haganum á Hofsstöðum, jarpt merfolald og brúngrátt hestfolald. 25. október sl. verður Eyjólfur þess síðan var að tvær hryssur til viðbótar vantar í stóðið, þ.e. jarpa 11 vetra hryssu og rauðskjótta/blesótta 13 vetra hryssu sem raunar er mög áberandi á lit. Hryssurnar eru báðar örmerktar. Úthaginn sem um ræðir liggur á einum stað að þjóðvegi þar sem hlið er að veginum. Eyjólfur er nú farinn að óttast að einhver eða einhverjir hafi farið þar um, án þess að hann geti sannað það. Hann óskar eftir því að allir sem einhverja vitneskju geta gefið um umrædd hross láti sig vita.