17. nóvember. 2008 07:29
 |
Auður og Gísli |
VÍS hefur endurnýjað styrktarsamning við Knattspyrnufélag ÍA og verður því áfram einn af aðalstyrktaraðilum knattspyrnunnar á Akranesi. “Knattspyrnufélag ÍA og VÍS hafa átt farsælt samstarf allt frá stofnun VÍS árið 1989 og hefur tryggingafélagið verið meðal helstu styrktaraðila Knattspyrnufélags ÍA allan þann tíma. Með nýjum samningi gerist VÍS “eðal” samstarfsaðili ÍA,” segir Gísli Gíslason formaður Rekstrarfélags meistaraflokks og 2. flokks í samtali við Skessuhorn. Það voru þau Gísli og Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri sölu-og þjónustusviðs VÍS sem skrifuðu undir nýja samstarfssamninginn sem gildir í þrjú ár, eða til ársins 2011. Við það tækifæri þakkaði Auður farsælt samstarf liðinna ára og sagði VÍS stoltan stuðningsaðila Knattspyrnufélags ÍA og knattspyrnunnar á Akranesi.
Gísli Gíslason færði VÍS bestu þakkir fyrir þann stuðning sem félagið hefur veitt Knattspyrnufélagi ÍA á liðnum árum og sagði samstarf þessara aðila hafa verið til mikillar fyrirmyndar í þau tæpu 20 ár sem það hefur staðið. „VÍS hefur sinnt vátryggingarþjónustu á Akranesi með miklum sóma og gætt þess sérstaklega að styðja um leið íþróttahreyfinguna. Stuðningur VÍS hefur alla tíð verið Knattspyrnufélagi ÍA mjög mikilvægur en framlag VÍS er aldrei mikilvægari en einmitt nú þegar kallað er eftir enn virkara íþróttastarfi. Fyrir þetta færum við VÍS bestu þakkir og fögnum myndarlegum stuðningi til næstu þriggja ára,“ sagði Gísli Gíslason.