17. nóvember. 2008 02:32
 |
Bókin fjallar um barna- og unglingafræðslu í Mýrasýslu. |
Ritnefnd um útgáfu bókarinnar Barna- og unglingafræðsla í Mýrasýslu hefur sent frá sér tilkynningu þar sem segir að henni þyki miður að tilkynna að útgáfa bókarinnar muni dragast um nokkra mánuði. Stefnt er að því að hún komi út á vordögum 2009. Kemur þessi frestun til af óhagstæðu efnahagsástandi í landinu, en búið var að semja um prentun í evrum og erfiðara var að fá styrktaraðila. “Teljum við að höfðingleg gjöf afkomenda Sigurþórs Halldórssonar, styrkur Sögufélags Borgarfjarðar og viljayfirlýsing bæjaryfirvalda geri okkur kleyft að ljúka verkefninu,” segir í tilkynningunni.