04. desember. 2008 01:05
“Það hefur óvenjumikið verið um að veiðimenn hafa gengið til rjúpna í landi Hítardals í haust án leyfis. Ég hef aðeins einu sinni tilkynnt það til lögreglu, en í að minnsta kosti sex skipti til viðbótar hef ég vitað um veiðar í óleyfi og haft samband við viðkomandi veiðimenn. Í flestum tilfellum sýnist mér að viðkomandi hafi í reynd álitið sig vera á afrétti, og þar með talið sig vera í fullkomnum rétti, en þó var einungis um tveggja kílómetra leið til bæjar,” sagði Finnbogi Leifsson bóndi í Hítardal í samtali við Skessuhorn. Finnbogi vildi koma þessu á framfæri vegna fréttar sem birtist hér á vefnum fyrr í vikunni þar sem haft er eftir lögreglunni í Borgarfirði og Dölum að svo virtist sem óvenjulega lítið hafi verið um ólöglegar rjúpnaveiðar á nýafstaðinni rjúpnavertíð. Finnbogi segir að í einu tilfelli hafi verið augljóst að viðkomandi veiðiþjófur vissu upp á sig sökina. Þá segist honum einnig kunnugt um að óleyfilegar veiðar hafi verið stundaðar í Hnappadal í haust.
Jörðin Hítardalur liggur að afrétti. Finnboga finnst með öllu ólíðandi annað en Skotveiðifélag Íslands haldi úti auglýsingum um veiðitímann og hvetji veiðimenn til þess að kynna sér eignarrétt á landi. “Ég hef ekki gert mál úr þessu í haust en mun endurskoða það fyrir næsta haust. Þessi framkoma tiltölulega fárra veiðimanna er rjúpnaveiðimönnum ekki til sóma,” segir Finnbogi Leifsson.