11. desember. 2008 10:05
 |
Sjómaður í Snæfellsbæ. Ljósm. af. |
Samgönguráðherra hefur tilkynnt hvernig hann skiptir 250 milljóna króna framlagi úr ríkissjóði til sveitarfélaga vegna tímabundins samdráttar í aflamarki þorsks á yfirstandandi fiskveiðiári. Það er Grindavík sem hlýtur hæsta einstaka framlag einstakra sveitarfélaga á landinu og Vestmannaeyjar næstmest. Miðað við höfðatölu fá Hríseyingar hinsvegar mest. Af sveitarfélögum á Vesturlandi fá fjögur þeirra framlög frá ráðuneytinu. Mest fær Snæfellsbær en þangað fara tæpar 24 milljónir króna, Grundarfjörður fær 9,2 milljónir, Stykkishólmur 6,3 milljónir og Akraneskaupstaður fær 3,9 milljónir króna.
Þessu framlagi ráðuneytisins er ætlað að koma til móts við tekjumissi sveitarfélaga þar sem samdráttur verður í atvinnu vegna kvótaskerðingar. Úthlutunin nú byggist á sambærilegum forsendum og árið 2007 sem er áhrif ákvörðunar um aflaniðurskurð á einstök sveitarfélög þar sem aflamark er skráð. Þó er að þessu sinni miðað við minnkun aflamarks eins og það var í hverju sveitarfélagi um sig þann 1. september 2007, en ekki meðaltal úthlutaðs aflamarks nokkur fiskveiðiár þar á undan eins og gert var fyrir ári. Ráðuneytið telur að með því sé betur mætt áhrifum af niðurskurði í aflamarki þorsks í hverju sveitarfélagi þar sem skoðuð er staða aflamarks við upphaf þess tíma er niðurskurðurinn tók gildi. Alls er 200 milljónum króna varið til þessa þáttar. Þá er sú breyting gerð nú, að sérstakt tillit er tekið til breytinga sem átt hafa sér stað í lönduðum afla milli fiskveiðiáranna 2006-2007 og 2007-2008. Alls er 50 milljónum króna varið til þessa þáttar, en framlaginu er ætlað að mæta minnkandi umsvifum í starfsemi hafna vegna ákvörðunar um niðurskurð í aflamarki þorsks.