Senda Skessuhorni fréttaskot
Spurning vikunnar
Hver er þinn uppáhalds mánuður
Áskrift að Skessuhorni
Færð á vegum
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
12. desember. 2008 01:40

Magnús Ingi og Helgi hoppa upp heimslistann

Magnús Ingi Helgason badmintonmeistari og íbúi í Hvalfjarðarsveit hækkar sig mikið á heimslistanum sem Alþjóða Badmintonsambandið gaf út í gær, fimmtudag. Í einliðaleik fór Magnús Ingi upp um 53 sæti milli vikna og er nú í 223. sæti. 16 liða úrslitin á írska mótinu um síðustu helgi gáfu Magnúsi mörg stig og er ástæða þessarar hækkunar. Í upphafi árs var Magnús 349. á heimslistanum og hefur því farið upp um 126 sæti á árinu. Landsliðsmennirnir Magnús Ingi Helgason og félagi hans Helgi Jóhannesson hafa stokkið upp listann að undanförnu, en aðrir íslenskir badmintonspilarar hafa ekki tekið þátt í alþjóðlegum mótum að undanförnu.

Tvíliðaleikurinn hjá þeim Magnúsi Inga og Helga hefur gengið vel í ár. Þeir eru nú í sæti 118 á heimslistanum en voru í 142. sæti í síðustu viku. Sigur þeirra á mótum í Slóvakíu og Kýpur gáfu mörg stig auk þess sem 16-liða úrslitin í Írlandi um síðustu helgi skiptu líka máli. Magnús Ingi og Helgi hafa nú sex mót á bakvið heimslistastöðu sína í tvíliðaleik.

 

Á heimsíðu badmintonsambandsins segir að til að heimslistinn gefi rétta mynd af getu þurfi tíu mót á bakvið árangur. Miðað við gengi þeirra Magnúsar og Helga að undanförnu ættu þeir að geta verið töluvert ofar á heimslistum með fleiri mótum. Helgi Jóhannesson er nú í 384.sætinu í einliðaleik og er það hækkun um níu sæti milli vikna.

Leit á vefnum
Fréttasafn
Næsta ár Fyrra ár
Mest lesið í vikunni
Aðsendar greinar
Hulda Hrönn Sigurðardóttir

Þjónusta við einstaklinga með ...

Ásmundur Einar Daðason

Ljósleiðari á hvert heimili

Bjarni Jónsson

Landsnet verði í samfélagseigu

Ólafur Óskarsson

Betri byggð, öruggari umferð

Lilja Rafney Magnúsdóttir

Spilavíti eru „Víti til varnað...

Frá mbl.is

Ekki tókst að sækja efni

Frá visir.is

Ekki tókst að sækja efni

Skessuhorn á Facebook Skessuhorn á LinkedIn Skessuhorn á Twitter Skessuhorn á Instagram Skessuhorn ehf. kt. 560103-3870 - Kirkjubraut 56, 300 Akranes - Sími 433 5500 - Ritstjórn skessuhorn@skessuhorn.is