18. desember. 2008 08:12
 |
Sindri Dagur tekur við nýja hestinum |
Í lok maí tók 18 manna hópur rekkaskátasveitarinnar Orion hjá Skátafélagi Akraness ásamt foringjum þátt í verkefninu „Gangan mikla“. Rekkaskátar eru skátar á aldrinum 15-19 ára og var verkefnið liður í starfi að svonefndu forsetamerki, sem er æðsta viðurkenning þessa aldurshóps innan skátahreyfingarinnar. Gangan mikla fól í sér að ganga frá Akranesi í Skorradal á 24 klukkustundum. Þar sem verkefnið var mjög krefjandi var ákveðið að safna áheitum vegna göngunnar og að þeim peningum sem söfnuðust yrði varið í að styrkja tómstundastarf fyrir Sindra Dag Garðarsson, fatlaðan dreng á Akranesi.
Gangan var löng og tók óneitanlega sinn toll á líkama skátanna, að sögn Eydísar Líndal skátaforingja. Blöðrur á fótum, gömul íþróttameiðsli og ný eymsli litu dagsins ljós. Að sögn skátaforingjans er svona verkefni ekki framkvæmt nema með vilja og miklum hópanda eins og sannaði sig.
„Aldrei var kvartað, heldur bitið á jaxlinn og verkefninu lokið með mikilli gleði og þreytu,“ segir Eydís.
Við áheitasöfnun var leitað til fyrirtækja og stofnana á Akranesi og undirtektir mjög góðar, en alls söfnuðust vel á annað hundrað þúsund króna, auk annarra styrkja. Þeir fjármunir sem söfnuðust voru afhentir fjölskyldu Sindra Dags annars vegar, en þeir voru notaðir til hestakaupa þar sem hestamennska nýtist honum m.a. við líkamsþjálfun. Hins vegar var styrkur til Fjörfiska sem skátarnir afhentu í hesthúsinu hjá Sindra Degi sem var mjög ánægður með hestinn sinn. Þá vilja skátarnir koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem lögðu verkefninu lið.