22. desember. 2008 02:05
Samkvæmt íbúaskrá Hagstofunnar frá 1. desember sl. fjölgar íbúum á Vesturlandi um 1,74% frá 1. desember 2007 til sama tíma 2008. Þeir eru nú 15.720 talsins en voru 15.452 árið 2007. Í flestum sveitarfélögum landshlutans verður lítil breyting á tímabilinu. Langmest fjölgar þó á Akranesi, eða um 4,5% á árinu en íbúar þar eru nú 6630 talsins. Í viðtali við Skessuhorn sagðist Gísli S Einarsson bæjarstjóri gera ráð fyrir að íbúatalan færi í 6700 manns árið 2009. Mest fækkar íbúum hlutfallslega í Skorradalshreppi en þar eru þeir nú skráðir 53 en voru 60 þann 1. desember 2007. Næstmest fækkun er í Hvalfjarðarsveit þar sem íbúar eru nú 641 og mælist fækkun þar 6,15% milli ára. Þar munar mestu um að töluvert margir útlendingar hafa horfið af landi brott á árinu og þar af leiðandi flutt úr sveitarfélaginu.
Íbúatalan þann 1. desember sl. er þannig á Vesturlandi:
1. des 2007: 1. des 2008:
Akraneskaupstaður 6345 6630
Borgarbyggð 3742 3747
Dalabyggð 710 712
Eyja- og Miklaholtshr. 130 132
Grundarfjarðarbær 918 921
Helgafellssveit 58 59
Hvalfjarðarsveit 683 641
Skorradalshreppur 60 53
Snæfellsbær 1703 1717
Stykkishólmsbær 1103 1108
Samtals: 15452 15720
Undanfarin fjögur ár hefur fólksfjölgun verið óvenju mikil hér á landi. Samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár voru landsmenn 319.756 hinn 1. desember síðastliðinn samanborið við 312.872 ári áður. Þetta jafngildir því að íbúum hafi fjölgað um 2,2% á einu ári. Það sem af er öldinni varð fólksfjölgun mest á árinu 2006 en það ár fjölgaði landsmönnum um 2,6%. Á vef Hagstofunnar segir að hvort sem litið er til annarra þjóða eða til fyrri tímabila hér á landi, sé þetta afar mikil fólksfjölgun. Jafnmikil fólksfjölgun hefur ekki orðið hér á landi síðan um miðbik sjöunda áratugar 20. aldar og í engu öðru Evrópulandi er fólksfjölgun jafnmikil og hér.