06. janúar. 2009 02:08
Næstkomandi laugardag hefjast knattspyrnuæfingar fyrir fatlaðra á Akranesi og fara þær fram í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Þessar æfingar eru samstarfsverkefni á milli Knattspyrnusambands Íslands, ÍA og Þjóts sem er íþróttafélag fatlaðra á Akranesi. Æfingarnar verða á hverjum laugardegi fram í maí og hefjast kl. 11:00. Á fyrstu æfingunni nú á laugardaginn, þann 10. janúar, munu þeir Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari A landsliðs kvenna og Gunnleifur Gunnleifsson landsliðsmarkvörður taka þátt í æfingunni. Æfingarnar eru fyrir strákar og stelpur, konur og karla á öllum aldri. Er fólk hvatt til að láta sjá sig. Foreldrar eru einnig velkomnir að koma og fylgjast með fjörugum æfingum, segir í tilkynningu frá ÍA.