09. janúar. 2009 04:03
Mánudaginn 12. janúar klukkan 20:00 verður haldinn opinn borgarafundur í Háskólabíói. "Efni fundarins er íslenskt atvinnulíf í aðdraganda kreppunnar, spurt er hvað fór úrskeiðis og fjallað verður um hriplekt lagaumhverfi og veikar eftirlitsstofnanir," eins og boðendur fundarins orða það. Frummælendur verða Robert Wade, prófessor í stjórnmálahagfræði við London School of Economics, Raffaella Tenconi, hagfræðingur hjá Straumi fjárfestingarbanka í London, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur og Herbert Sveinbjörnsson heimildamyndagerðarmaður og aðgerðarsinni. Auk þeirra hefur formönnum stjórnmálaflokkanna og Viðskiptaráði Íslands verið boðin þátttaka í pallborðsumræðunum.
"Rétt er að taka fram að enskumælandi frummælendum verður gert kleift að svara spurningum sem bornar eru fram á íslensku með aðstoð túlks, og erindi þeirra og svör verða sömuleiðis þýdd á íslensku," segir í tilkynningu.