29. janúar. 2009 03:02
Atvinnu- og markaðsnefnd Borgarbyggðar mun standa fyrir opnum degi föstudaginn 6. febrúar næstkomandi í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þar verða saman komnir ýmsir aðilar sem lagt geta fólki og fyrirtækjum lið með upplýsinga- og ráðgjöf af ýmsu tagi. “Ætlunin með þessum degi er m.a. að fá fólk saman og virkja þá krafta sem í okkur búa. Á síðustu mánuðum hafa gengið yfir miklar breytingar og ákveðin óvissa myndast en dagur sem þessi er meðal annars hugsaður til að fólk geti leitað svara við mörgum þeim spurningum sem kunna að hafa vaknað um réttindi, stöðu og framtíðarmöguleika. Þó að óvissan sé mikil eru vissulega tækifæri sem felast í öllum breytingum og er það ekki síður ætlun þessarar samkomu að nálgast einhver þeirra,” segir Þór Þorsteinsson formaður atvinnu- og markaðsnefndar Borgarbyggðar í samtali við Skessuhorn.
Þór segir að margir lumi á góðum hugmyndum til atvinnusköpunar sem einmitt núna muni eiga meiri möguleika til að verða að veruleika. Á staðnum verði aðilar sem geti lagt fólki lið, svo sem með rekstrarráðgjöf og jafnvel styrkjum.
“Það stoðkerfi sem við höfum hér á svæðinu er umfangsmeira en margir gera sér grein fyrir og er opinn dagur gott tækifæri til að kynna sér hvað stendur til boða. Dagurinn er ætlaður öllum; fólki í atvinnuleit, fólki með örugga atvinnu, fólki sem vill bæta við sig færni og þekkingu, frumkvöðlum og síðast en ekki síst forvitnu fólki,” sagði Þór að lokum.