10. febrúar. 2009 11:52
Margrét Þóra Jónsdóttir á Akranesi hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sætið á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi vegna Alþingiskosninganna í vor. “Ég tel að framsóknarfólk geti lagt mikið af mörkum í því mikla endurreisnarstarfi sem framundan er á Íslandi. Þar þurfa gildi samvinnu, jafnaðar og mannauðs að vera í öndvegi auk þess sem það er skýr krafa samfélagsins að nýtt fólk komi til starfa á Alþingi,” segir Margrét Þóra í tilkynningu. Hún er leikskólakennari, 39 ára að aldri, gift og tveggja barna móðir.
“Um þessar mundir er ég að skrifa lokaritgerð í mastersnámi við Háskólann á Bifröst og stefni að því að útskrifast í vor. Ég hef tekið þátt í pólitík síðustu 7 árin og var ég í fjórða sæti á lista fyrir Framsóknarflokksins í bæjarstjórnarkosningum á Akranesi árið 2002. Á árunum 2002-2006 var ég formaður Félags ungra framsóknarmanna og einnig hef ég setið í félagsmálaráði á Akranesi síðustu sex árin.
Mín helstu baráttumál eru fjölskyldumál, atvinnumál, menntamál og heilbrigðismál. Við Íslendingar erum að ganga í gegnum erfitt tímabil þar sem þörf er skjótra og fumlausra aðgerða. Mikilvægt er að láta verkin tala og þar duga engin vettlingatök. Því segi ég; Betra Ísland fyrir börnin mín og væntanleg barnabörn,” segir í tilkynningu.