16. febrúar. 2009 06:33
Stjórn Ungmennafélags Íslands tók þá ákvörðun á fundi sínum nú síðdegis í dag að 12. Unglingalandsmót UMFÍ í sumar færi fram á Sauðárkróki dagana 31. júlí til 2. ágúst. Sex staðir lýstu yfir áhuga að fá mótið eftir að fyrir lá ósk frá HSH um frestun á framkvæmd mótsins sem vera átti í Grundarfirði í sumar. Óskuðu Grundfirðingar eftir að halda mótið þess í stað sumarið 2010. Í kjölfarið ákvað stjórn UMFÍ að leita til sambandsaðila UMFÍ og þeim gefinn kostur á að taka að sér framkvæmd Unglingalandsmótsins í sumar. Meðal þeirr aðila sem gáfu kost á að taka að sér mótið í sumar var Ungmennasamband Borgarfjarðar með mótsstaðinn Borgarnes í huga.
Aðrir umsækjendur voru Héraðssambandið Skarphéðinn í Þorlákshöfn, Héraðssamband Þingeyinga á Laugum, Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands á Egilsstöðum og Ungmennasamband Vestur-Skaftafellsýslu með Vík í Mýrdal sem mótsstað. Á þessum stöðum hafa ýmist Landsmót og Unglingalandsmót verið haldin áður. Fyrsta flokks aðstaða er til staðar á fyrrgreindum stöðum, segir í tilkynningu frá stjórn UMFÍ.