12. júní. 2009 01:53
Leikarinn góðkunni Stefán Karl Stefánsson mun fara með titilhlutverk kvikmyndarinnar Laxdæla Lárusar Skjaldarsonar, sem tekin verður upp í Búðardal í júlí. Er þetta fyrsta aðalhlutverk Stefáns Karls í kvikmynd, en hann gerði garðinn frægan einkum með hlutverki sínu sem Glanni glæpur í Latabæ. Leikstjórn myndarinnar er í höndum Dalamannsins Ólafs Jóhannessonar sem einnig leikstýrði m.a. Stóra planinu, The Amazing Truth About Queen Raquela og vefþáttunum Circledrawers. Handritið um Laxdælu skrifaði Ólafur ásamt Hrafnkeli Stefánssyni.
“Ég vann með Stefáni fyrir mörgum árum í stuttmynd og var það góð reynsla,” segir Ólafur. “Þegar ég ræð leikara þá eru engar sérstakar ástæður fyrir því, það kemur frá einhverju innsæi. Ég hlakka til að vinna með honum og held það verði skemmtilegt. Maður veit samt aldrei, hann er að koma frá Hollywood til að leika í þessari litlu mynd og er auðvitað með ýmsar sérþarfir. Hann þarf trailer, vill bara blátt m&m nammi og sérstök ilmkerti sem þarf að sérpanta frá Asíu,” segir Ólafur.
Laxdæla Lárusar Skjaldarsonar er framleidd af Kristínu Andreu Þórðardóttur, Jóhanni G. Jóhannssyni og Ólafi Jóhannessyni hjá Popoli kvikmyndagerð. Myndin segir frá verkfræðingi í Reykjavík sem er nýfráskilinn. Hann lýgur sig inn í aðstæður til að geta bjargað sveitarfélagi á Vesturlandi frá glötun í örvæntingafullri tilraun til að finna sjálfan sig.