16. júní. 2009 03:01
 |
Örninn er nú til aðhlynningar í Húsdýragarðinum. Ljósm. nsv.is |
“Ferðafólk í útilegu tilkynnti lögreglunni á Snæfellsnesi um örn í vanda í Nátthaga við Berserkjahraun seint síðastliðið föstudagskvöld,” segir á vef Náttúrustofu Vesturlands, nsv.is. Starfsmaður Náttúrustofunnar mætti á staðinn og handsamaði örninn, sem reyndist vera grútarblautur. Grúturinn eyðileggur einangrunargildi fiðursins og gerir fuglinum jafnframt erfitt um flug. Fuglinn bar merki en hafði verið merktur sem ungi á eyju í Hvammsfirði í fyrra. Örninn var fluttur til Borgarness,þar sem Kristinn Haukur Skarphéðinsson, starfsmaður Náttúrufræðistofnunar, tók við honum og flutti áfram í Húsdýragarðinn í Reykjavík til aðhlynningar. Þar verður fiðrið þvegið og vonandi kemst fuglinn aftur til síns heima innan skamms, segir á vef Náttúrustofunnar.