22. júní. 2009 10:48
Greinilegt er að keppnin í 1. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu er að harðna. Bilið á milli liðanna í deildinni þéttist í síðustu umferðinni sem fram fór á sunnudaginn. Toppliðin töpuðu öll sínum leikjum en neðstu liðin unnu eða gerðu jafntefli. Víkingar í Ólafsvík, sem töpuðu 2:3 fyrir Þórsurum nyrðra, eru nú búnir að fá upp að hlið sér Aftureldingu, Þór og Leikni sem öll eru með sex stig í fjórum neðstu sætunum. Þar fyrir ofan eru Skagamenn ásamt Víkingi Reykjavík með átta stig. Skagamenn gerðu 1:1 jafntefli við KA á Akranesvelli á sunnudag.
Ólafsvíkur Víkingar eru farnir að þekkja leiðina til Akureyrar ágætlega. Þetta var í annað skiptið á fimm dögum sem þeir léku gegn Þórsurum fyrir norðan. Víkingarnir byrjuðu leikinn betur en í bikarleiknum á dögunum. Fyrri hálfleikurinn var frekar jafn en hann leið án þess að hvorugu liðinu tækist að skora. Þórsararnir byrjuðu seinni hálfleikinn vel og ekki var langt liðið þegar þeirra fyrsta mark leit dagsins ljós. Um miðjan seinni hálfleikinn var staðan orðin 3:0 fyrir Þór, en Víkingar gáfust ekki upp. Þeir löguðu stöðuna með tveimur mörkum á tíu síðustu mínútunum. Fyrst Josip Morosevic eftir glæsilegan einleik og síðan Alfreð Elías Jóhannsson í blálokin. Þessi góði kafli kom full seint til að vinna upp þriggja marka muninn og lokatölur því 3:2 fyrir Þór.
Mikil meiðsli hafa hrjáð Víkingana að undanförnu en þeir vonast til að sem flestir verði klárir í slaginn þegar KA-menn koma í heimsókn nk. laugardag. Kvöldið áður þurfa Skagamenn að sækja ÍR-inga heim í Breiðholtið.