23. júní. 2009 08:47
 |
Á leið á toppinn. Ljósm. Guðrún Lára Pálmadóttir |
Næturganga um sólstöður á Snæfellsjökul, sem farin var að kvöldi 19. júní sl., tókst afar vel að sögn starfsmanna Þjóðgarðsins. Gangan var samstarfsverkefni Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og Ferðafélags Íslands. Alls gengu 251 göngugarpur alla leið upp á tindinn. Veðrið lék við göngufólk og aðstæður voru afar góðar. Að þessu sinni var gengið upp norðvesturhlið Jökulsins, frá bílastæði á Harðabala upp af Eysteinsdal. Margir göngumanna höfðu áður farið á Jökulinn en ekki þessa leið. Toppnum var náð rétt fyrir klukkan hálf tvö en á leiðinni niður voru göngumenn baðaðir miðnætursólinni sem var að koma upp og litaði umhverfið og snjóinn appelsínugulan. Fjöldi þátttakenda í ferðinni er Íslandsmet í fjallgöngu og aldrei hafa fleiri tekið þátt í jöklagöngu sem einn hópur.