02. júlí. 2009 08:00
Krakkarnir í leikskólanum Garðaseli á Akranesi fengu góða heimsókn á dögunum þegar atvinnuknattspyrnumaðurinn og landsliðsmiðherjinn Arnór Smárason kíkti í heimsókn. Arnór stóð fyrir smá knattspyrnuæfingu fyrir elstu börn leikskólans og notaði jafnframt tækifærið og fræddi þau um ýmislegt, svo sem mikilvægi heilbrigðs lífernis og góðrar ástundunar. Gildi þessara þátta fyrir þá sem vilja ná langt í leik og starfi.
Það mun reyndar ekki vera nýtt að Arnór komi í heimsókn í Garðasel. Að sögn fóstranna í leikskólanum er nánast árvisst að hann líti þar inn, eða allt frá því hann fór fyrst í atvinnumennsku fyrir fimm árum. Arnór sleit sjálfur barnsskónum í Garðaseli á sínum tíma og má því segja að atvinnumaðurinn haldi tryggð við gamla leikskólann sinn.
Þess má geta í leiðinni að Garðasel hlaut viðurkenningu árið 2004 sem heilsuleikskóli og hefur lagt grunn að mörgum efnilegum íþróttamanninum. Leikskólastjóri er Ingunn Ríkharðsdóttir og kannski rennur henni blóðið til skyldunnar, en hún er dóttir Ríkharðs Jónssonar hins frækna kappa af Akranesi, sem fyrir löngu er orðin goðsögn í íslenskri knattspyrnu.