02. júlí. 2009 03:39
Loðnutorfur fyrir norðan land og vaðandi makríll vestan við landið hljóta að teljast góðar fréttir fyrir íslenskan sjávarútveg. Hvort tveggja mun eiga við rök að styðjast að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarveiðisviðs HB Granda á vef fyrirtækisins. Vilhjálmur segist hafa haft spurnir af því að færeyska skipið Norðborg, sem er við veiðar á norsk-íslensku vorgotssíldinni, hafi að undanförnu leitað að veiðanlegri síld fyrir norðan land innan íslensku fiskveiðilögsögunnar. Þar sé síld en á stóru svæði og dreifð, þannig að hún sé ekki veiðanleg.
Vilhjálmur segir að góðu fréttirnar séu hins vegar þær að skipið hafi rekist á nokkrar ágætar loðnutorfur og bendi sýni úr aflanum til þess að það sé tveggja ára loðna eða sami árgangur og væntanlega muni koma til með að bera uppi veiðina á næstu vertíð. Þá er haft eftir Vilhjálmi á vefnum að áhöfnin á Hval 9 hafi orðið vör við mikið af makríl vestur af landinu, allt frá fjöru og langt út á haf