03. júlí. 2009 09:00
Orgeltónleikar verða í Reykholtskirkju laugardaginn fjórða júlí og hefjast þeir kl 16.00. Þar leikur Eyþór Franzson Wechner verk eftir J.S. Bach, Felix Mendelssohn-bartholdy, Pál Ísólfsson, César Franck og Max Reger
Tónleikarnir eru haldnir á vegum Reykholtskirkju og Félags íslenskra organleikara
Aðgangseyrir rennur í Orgelsjóð Reykholtskirkju. Miðaverð er 1.500 krónur.