08. júlí. 2009 03:05
“Íslendingar þurfa að sækja fram með nýja atvinnustefnu og sóknaráætlun sem byggir á raunverulegum verðmætum og styrk þjóðarinnar. Við munum ekki vinna okkur út úr erfiðleikunum með skattahækkunum, lágum launum, niðurskurði og háum vöxtum. Ef það verða einu aðgerðir stjórnvalda munum við sökkva dýpra í skuldafenið og verða um langt árabil í hópi fátækustu og einangruðustu ríkja heims,” skrifar Þorkell Sigurlaugsson á Vísi.is í dag. Hann heldur áfram: “Það eru ekki ný sannindi að okkar framtíð og hagsæld mun byggja á framtaki einstaklinga og þeim verðmætum sem þeir geta skapað fyrir þjóðarbúið. Jón Sigurðsson forseti sagði í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar á 19. öld: Það þarf annað en hjalið tómt til að hrinda Íslandi á fætur aftur! Það þarf atorku og ráðdeild og framsýni og þollyndi! Það þarf meira en fárra manna afl! Það þarf afl og dug heillar þjóðar!
Þessi orð Þorkels eru ágæt lesning og vonandi að sem flestir stjórnmálamenn lesi þau. Af þeim sökum vitnum við hér í skrif hans, sjá: http://visir.is/article/20090708/