16. júlí. 2009 03:36
Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtaka Íslands segir að niðurstaða atkvæðagreiðslu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu sé fyrst og fremst dapurleg. Á vef Bændasamtakanna segir hann: „Það er ekki hægt að segja annað en að þessi niðurstaða setji landbúnað á Íslandi í mikla óvissu. Við erum hugsanlega að sjá framundan mikla stöðnun og jafnvel undanhald í landbúnaði í ljósi reynslu okkar af því að þoka eðlilegum málum áfram í samstarfi við þau stjórnvöld sem nú ríkja. Því er ekki annað hægt en að vera mjög svartsýnn á næstu misseri.“ Haraldur segir að Bændasamtökin muni áfram nálgast hugsanlega Evrópusambandsaðild með málefnalegum og ábyrgum hætti. „Það höfum við alltaf gert og byggt okkar málflutning á staðreyndum og fyrirliggjandi gögnum. Íslenskur landbúnaður mun hljóta þung áföll ef gengið verður inn í sambandið og gegn því munum við áfram berjast.“