23. júlí. 2009 09:41
 |
Kristinn H Gunnarsson |
Fréttastofa RÚV sýndi í gærkvöldi sérstakan fréttaskýringaþátt um Ísland og Evrópusambandið. Þar var ætlunin að varpa ljósi á hvað Evrópusambandið væri, hvert það stefndi og hvaða breytingar yrðu hér á landi við aðild. Þáttur þessi hefur fengið sterk viðbrögð þar sem fylgjendur ESB aðildar hæla honum, en andstæðingar eru “rasandi” og væna RÚV um skort á hlutleysi. Þeirra á meðal er Kristinn H Gunnarsson fv. alþingismaður. Í pistli sem hann ritar segir Kristinn: “Útkoman eru mikil vonbrigði. Þrátt fyrir að margt í þættinum væri ágætt báru efnistökin í heild sinni þess augljóslega merki að gylltir voru kostir aðildar og dregið úr ókostum. Fréttastofan féll á prófinu,” segir Kristinn H.
Í sama streng tekur meðal annarra Gunnar Ásgeir Gunnarsson, bóndi á Hýrumel í Borgarfirði. Eftir þáttinn skrifaði Gunnar: “Var að horfa á RUV áróðursmaskínu fyrir ESB. Hvað ætli þeir fái greitt frá sambandinu fyrir þetta? Mér varð flökurt að horfa á þetta.”
Sjá pistil Kristins H Gunnarssonar á www.kristinn.is