03. september. 2009 09:05
 |
Frá busavíglsu í FVA. |
Nú er tími svokallaðra busavígslna í framhaldsskólum landsins. Stjórn Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, hvetur skólayfirvöld til að hlutast til um skipulagið og kynna það á heimasíðum skólanna. "Þetta er verkefni sem nemendur, skólayfirvöld og foreldrar eiga að vinna saman að. Líklegt er að góður undirbúningur, samvinna og samráð komi í veg fyrir ofbeldi og auki ánægjuna sem fylgir því að byrja í nýjum skóla. Busavígslur eiga að vera uppbyggjandi og ánægjulegar og til þess gerðar að taka vel á móti nýjum nemendum," segir í tilkynningu frá Heimili og skóla.