21. september. 2009 02:05
Í tilefni af útkomu tveggja nýrra binda af Kirkjum Íslands verður haldin ráðstefna í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands fimmtudaginn 24. september kl. 13.15-15.00. Flutt verða sjö stutt erindi. Þorsteinn Gunnarsson arkitekt lýsir markmiðum útgáfunnar og umfjöllunarefni, Jón Torfason skjalavörður segir frá heimildum um kirkjur og kirkjugripi á Þjóðskjalasafni Íslands, Björk Ingimundardóttir skjalavörður frá Hæli í Flókadal flytur óformlegt spjall um Borgarfjörð og Borgfirðinga, Sigríður Björk Jónsdóttir listfræðingur flytur erindi um kirkjur og kirkjusmiði í Borgarfjarðarprófastsdæmi, Lilja Árnadóttir, fagstjóri munasafns Þjóðminjasafns flytur erindi um gripi og áhöld í kirkjum í Borgarfirði og á Mýrum, Guðrún Harðardóttir sagnfræðingur á Þjóðminjasafni Íslands segir frá Reykholtskirkju og áhrifum dómkirkjunnar í Reykjavík og Gunnar Bollason sagnfræðingur spjallar um borgfirsk minningarmörk.
Ráðstefnustjóri er Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður.
Í þessum tveimur nýjustu bindum af Kirkjum Íslands er fjallað um kirkjur á eftirtöldum stöðum: Ökrum, Álftanesi, Álftártungu, Borg, Hjarðarholti, Hvammi, Stafholti, Akranesi, Fitjum, Gilsbakka , Hvanneyri, Innri-Hólmi, Leirá, Reykholti (gamla kirkjan) og Stóra-Ási.