08. desember. 2009 07:02
Stjórn Samtaka ungra bænda hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún fordæmir þær fyrirætlanir forsætisráðherra að leggja niður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti í núverandi mynd. Ungir bændur telja óæskilegt að leggja niður það ráðuneyti sem fer með málefni þessarra tveggja frumframleiðslugreina. Benda þeir á að nú sé einsýnt að á næstu árum verði að leggja mikla áherslu á að tryggja mætvælaöryggi íslensku þjóðarinnar til framtíðar. „Málefni landbúnaðar og sjávarútvegs skipa veigamikinn sess í íslensku samfélagi og telur stjórn Samtaka ungra bænda því fráleitt að leggja niður ráðuneyti landbúnaðar- og sjávarútvegsmála. Skora því Samtök ungra bænda á forsætisráðherra að endurskoða þessa ákvörðun sína og hætta tafarlaust allri vinnu við að leggja niður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti,“ segir í ályktuninni.