08. desember. 2009 02:53
Árlegt jólaútvarp unglinga í félagsmiðstöðinni Óðali í Borgarnesi hófst sl. mánudag. með ávarpi útvarpsstjóra. Dagskrá þess er hefðbundin. Fyrir hádegi eru sendar út upptökur frá yngri bekkjum skólans, fréttir úr héraði í hádeginu og síðan unglingaþættir í beinni útsendingu fram á kvöld. Unglingar í Óðali hafa unnið handrit sín í íslenskukennslu grunnskólans og fá auk þess metið inn í nám sitt. “Bærinn í beinni,” pallborð og umræður úr héraði með sveitarstjórnarfólki og öðrum gestum verður á sínum stað klukkan 13.00 á föstudag en sá dagskrárliður hefur verið með þeim vinsælli undanfarin ár.
Útvarpssendingum lýkur svo með lokahófi þeirra fjölmörgu unglinga sem taka þátt á einn eða annan hátt í útvarpinu á föstudagskvöldið. Unglingar úr Laugagerðisskóla, félagsmiðstöðvum á Bifröst og Hvanneyri ásamt ungmennum úr nemendafélagi Menntaskólans og ungmennahúsi eru einnig með þætti í útvarpinu.
Allir geta náð útsendingum á vefnum: odal.borgarbyggd.is en tíðnin er 101,3.